Við fengum líka hrós frá yfirmanninum :)

Mér hlýnaði pínulítið um hjartaræturnar þegar ég kom í vinnuna í gærmorgun, á endastöð var kaka á borði.  Hver á afmæli í dag, hugsaði ég.  Ástæðan kom svo í ljós síðar, þetta var þakklætisvottur frá yfirmanninum vegna þess að vel hafði gengið að halda niðri tjónum á vögnum undanfarið.  Það skiptir ekki máli hvað er gert eða hversu mikið eða dýrt, bara þessi ofursæta litla kaka á borðinu á öllum endastöðvum sagði allt sem þurfti.  Rosalega er ég ánægð með þetta.
mbl.is Fengu hrós frá forstjóranum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband